Starfsemi Verndar

Starfsemi Verndar
  • Stuðningur við einstaklinga sem þegar eru í fangelsum

Vernd er í góðu sambandi við öll fangelsi landsins þar sem Vernd heimsækir fangelsin reglulega og undirbýr farveg fyrir fanga til að komast sem fyrst út úr fangelsi ef sá möguleiki er fyrir hendi. Fangar hafa greiða leið að samtölum við starfsmenn Verndar hvort sem það er í síma eða heimsóknum. Samtöl beinast sérstaklega að þeim möguleikum sem fólgnir eru í vistun á Vernd þeim tækifærum sem bjóðast við komuna og tækifærum til nýrra lífsviðhorfa. Vernd þarf oft að leggja mikla vinnu í að sannfæra menn um kosti þess að vistast á Vernd og oftar en ekki tekst það. Þá vinnur Vernd í samráði við fanga um að finna vinnu komast í skóla, meðferð eða starfsendurhæfingu.

  • Félagslegur stuðningur við einstaklinga sem fullnusta dóma á Vernd

Búsetuúrræði Verndar byggir á hugmyndafræði um hjálp til sjálfshjálpar. Vernd hefur rekið fimm heimili á þessum sextíu árum og er húsnæðið að Laugateig 19 núverandi staðsetning samtakanna. Pláss er fyrir allt að 23 einstaklingum og undanfarin ár hefur nánast verið fullt. Það hefur þó ekki verið þannig að um biðlista sé að ræða.

Vernd leggur mikið upp úr félagslegri virkni þeirra sem eru á Vernd. Allir sem þar búa verða að vera í virkni alla virka daga vikunnar og getur það verið ýmist vinna, skóli, starfsendurhæfing, meðferð eða stuðningur í úrræðum sem eru í boði. Þá er boðið upp á viðtöl við starfsmenn Verndar, lengst af hefur verið menntaður vímuefna ráðgjafi sem Vernd greiðir fyrir. Þá veitir Vernd skjólstæðingum stuðningur við ýmis mál svo sem tengingu félagsþjónustur sveitafélaganna, Tryggingastofnun, Ríkisskattstjóra og vinna við úrlausn ýmissa mála sem geta verið mjög fjölbreytt og flókin. Þá eru húsnæðismál málaflokkur sem getur verið mjög snúinn og skjólstæðingar okkar oft í þeirri stöðu að hafa ekki að neinu að hverfa en 45 % þeirra sem vistast á Vernd eru ekki með ákveðin dvalastað í lok afplánunar. Það er þó mjög sjaldan að ekki hafi verið búið að finna húsnæði fyrir brottför á Vernd. Þá hafa einstaklingar búið á Vernd lengur en þörf krefur og jafnvel klárað tíma rafræns eftirlits inni á Vernd. Þá hefur aðgengi skjólstæðinga samtakanna að félagsráðgjöfum og sálfræðingum fangelsismálastofnunnar verið mjög gott.

  • Vinnumiðlun

Vernd hefur á að skipa nokkur hundruð fyrirtækjum og vinnuveitendum sem hafa reynslu og þekkingu af vinnu með einstaklingum sem dvelja á Vernd. Vernd útvegar einstaklingum vinnu ef þess gefst kostur enda eru flestir sem í fangelsi í mjög veikri stöðu til þess að komast í vinnu þegar sótt er um á Vernd. Þá er staða einstaklinga oft þannig að þeir eru óvinnu færir og þurfa langan tíma til þess að ná líkamlegri og andlegri heilsu þangað til að því kæmi. Vernd gefur þeim tækifæri á að hefja störf í starfsendurhæfingu og þegar staðan er orðin betri er leitast eftir því að finna vinnu fyrir þá. Á þeim tíma sem einstaklingar dvelja á Vernd er starfsfólk Verndar og stjórnendur eða rekstraaðilar fyrirtækjanna í góðu sambandi.

  • Starfsendurhæfing / endurhæfing

Starfsendurhæfing fer fram í samstarfi við félagasamtök og stofnanir svo sem Samhjálp , Kaffistofa Samhjálpar, Nytjamarkaðir, RKÍ fataflokkun, Hjálpræðisherinn og nytjamarkaðir þeirra og önnur störf sem þar falla undir sem starfsendurhæfing. Þá eru opinberir aðilar svo sem Virk, Hitt húsið, Grettistak eða göngudeildarmeðferð í boði. Einnig er gefin kostur á meðferð hjá Landspítalanum þar sem 33 A og tengdar stofnanir einnig Hvítaband Landspítalans að Skólavörðustíg 37. Þá er starfsendurhæfing einnig í samstarfi við göngudeildarmeðferð þar sem hluti úr deigi er meðferðarvinna eða starfsendurhæfing allt eftir getu þeirra sem þar eru. Teigar og SÁÁ sem bjóða upp á göngudeildameðferð sem passa skjólstæðingum Verndar vel. SÁÁ er þó eina meðferðarstofninnin sem bíður upp á viðahaldmeðferð við vímuefnaröskun sem hefur verið að aukast á undan förnum árum. Einnig hafa einstaklingar farið af Vernd til tímabundinnar innlagnar í vímuefnameðferð á meðferðarheimilinu Hlaðgerðakoti.

  • Skólaganga

Nokkuð er um að einstaklingar sem búa á Vernd stundi skóla á þessum tíma sem þeir búa á Vernd og er um fjölbreyttar leiðir til þess, Verkmenntaskólar, Fjölbraut, Tækniskólinn, Fjarnám, Háskólinn á Íslandi Háskólinn í Reykjavík, Ökuskóli / Meirapróf / Endurupptaka ökuskyrteina svo eitthvað sé nefnt. Oftast gengur námið vel og eru starfsmenn Verndar í góðu sambandi við kennara og stjórnendur skólanna á námstíma.

  • Þolendur

Margir þolendur og aðstandendur þeirra hafa samband vegna komu gerenda í úrræði Verndar. Getur það verið flókið til úrlausnar. Það er þó sú einstaka staða sem Vernd hefur til samtala við gerendur og stuðningur við þá sem mildar þær áhyggjur sem þolendur hafa.

  • Niðurlag

Þrátt fyrir þessa upptalningu verður sá listi aldrei að fullu niður skrifaður í þeim verkefnum sem Vernd leggur skjólstæðingum sínum til með það að markmiði að styrkja félagslega stöðu þeirra sem leita til samtakanna. Í dag er lengsti tími þeirra sem geta dvalið á Vernd 24 mánuður.

 

 

Þráinn Farestveit